Hjúkrunarfræðingurinn hans kynnir honum fyrir Unu og Jón fær skilaboð með leiðbeiningum um að sækja appið. Hann skráir sig inn með rafrænum skilríkjum og þegar hann opnar Unu sér hann strax þau verkefni sem hafa verið sett upp fyrir hann.
Jón mælir meðal annars blóðsykur og blóðþrýsting heima. Þegar hann notar mælitæki sem tengjast Unu berast niðurstöðurnar sjálfkrafa inn í appið. Hann getur líka skráð mælingar handvirkt ef hann vill það frekar.
Í Unu fær Jón einnig fræðsluefni og spurningalista sem tengjast hans meðferð. Appið minnir hann á þegar komið er að mælingum eða verkefnum og hann getur fylgst með niðurstöðum sínum og þróun þeirra á einum stað.
Heilbrigðisstarfsfólkið sem sinnir Jóni sér þær upplýsingar sem hann skráir og getur fylgst með stöðu hans samkvæmt því verklagi sem gildir um þjónustuna. Ef Jón hefur spurningu getur hann sent skilaboð í Unu appinu og þegar þörf er á getur hann átt myndsamtal við sinn meðferðaraðila

