Um okkur

Una varð til eftir samtöl við hagaðila í heilbrigðiskerfinu sem kölluðu eftir öruggri fjarheilbrigðislausn sem hægt væri að nota þvert á heilbrigðis- og velferðarkerfið. Una byggir á lausn frá sænska fyrirtækinu Cuviva, sem var stofnað árið 2016, með það markmið að umbreyta hvernig heilbrigðisþjónusta er veitt með nýjum stafrænum lausnum og sérstakri áherslu á einstaklingsbundnar þarfir. Cuviva er vel þekktur framleiðandi á sviði heilbrigðislausna og leiðandi á norrænum markaði.

Una er þjónustuð af Icepharma Velferð sem er með áralanga reynslu í velferðartækni og nýskapandi lausnum fyrir heilbrigðiskerfið.