Svona virkar Una

Virkni, mælitæki og tenging við heilbrigðisþjónustuna

Una tengir einstaklinginn og heilbrigðisstarfsfólkið saman á einum stað. Í gegnum Unu er hægt að halda utan um mælingar, spurningalista, verkefni, fræðslu og samskipti sem tengjast eftirfylgni og meðferð.

Mælitæki geta sent mælingar sjálfkrafa inn í Unu, en einnig er hægt að skrá niðurstöður handvirkt. Heilbrigðisstarfsfólk fær síðan aðgang að upplýsingunum samkvæmt því verklagi sem skilgreint hefur verið fyrir þjónustunni.

Una appið fyrir notendur

Una gerir einstaklingum kleift að taka virkari þátt í eigin heilsu í gegnum örugga fjarheilbrigðislausn.

  • Rafræn auðkenning
  • Áminningar
  • Verkefnalisti
  • Skilaboð
  • Heilsufarsmælingar
  • Fræðslusafn
  • Spurningalistar
  • Dagatal
  • Myndsímtal

Einfaldari leið til að fylgjast með eigin heilsu og vera í tengslum við heilbrigðisþjónustuna.

Una Control Tower fyrir heilbrigðisstarfsfólk

Una safnar saman upplýsingum sem tengjast eftirfylgd skjólstæðinga og gefur heilbrigðisstarfsfólki betri yfirsýn yfir stöðu og þróun.

  • Tvíþátta auðkenning
  • Yfirsýn yfir skjólstæðinga
  • Forgangsröðun á skjólstæðingum
  • Fræðslusafn
  • Tilbúnir spurningalistar
  • Mælingar skjólstæðinga
  • Skjólstæðingahópar

  • Umönnunarleið
  • Skilaboð
  • Myndsímtal

Betri yfirsýn og einfaldari leið til að halda utan um markvissa þjónustu og eftirfylgni.

Búnaður og mælitæki

Með Unu fjarheilbrigðislausn er hægt að samþætta skynjara, mælitæki og önnur lækningatæki sem safna og greina heilsufarsgögnum. Þetta gerir heilbrigðisstarfsfólki kleift að fylgjast með skjólstæðingum í rauntíma og bregðast við breytingum á heilsufari þeirra. Skjólstæðingar fá áminningar fyrir mælingum sínum og fara þær mælingar beint inn í appið sem auðveldar skjólstæðingum yfirsýn.

Stöðug þróun er á samþættingu nýrra skynjara og lækningatækja við Unu.

Nokkrir skynjarar sem þegar eru tengdir við Unu:

  • Blóðþrýstingsmælir
  • ECG og púlsmælir
  • Hitamælir
  • Öndunartíðnimælir
  • Súrefnismettunarmælir
  • Blóðsykursmælir
  • Vigt

Þessir mælar færa allar mælingar beint inn í appið en ef einstaklingar vilja nota eigin tæki er hægt að skrá mælingar handvirkt.