Una Heilsa
Íslensk fjarheilbrigðislausn nær þér
Una tengir einstaklinga og heilbrigðisstarfsfólk saman og gerir hluta eftirfylgdar mögulegan heima – með mælingum, verkefnum, fræðslu og öruggum samskiptum á einum stað.


Heilbrigðisþjónusta heima
Með Unu getur hluti eftirfylgdar farið fram þar sem einstaklingurinn er. Mælingar, spurningalistar, fræðsla, verkefni og samskipti eru aðgengileg á einum stað og heilbrigðisstarfsfólk getur fylgst með stöðu og þróun samkvæmt því verklagi sem gildir um þjónustuna.
Einfaldara fyrir einstaklinginn.
Betri yfirsýn fyrir heilbrigðisstarfsfólk.


