Heilsan mín og Una
Með Unu getur þú fylgst betur með eigin heilsu og verið í einföldu og öruggu sambandi við heilbrigðisstarfsfólkið sem sinnir þér.
Í Unu eru mælingar, verkefni, spurningalistar, fræðsla og öll samskipti á einum stað. Þú færð áminningar þegar komið er að mælingum eða verkefnum og getur því sinnt þinni heilsu og eftirfylgni heima hjá þér.
Una hjálpar þér sem og meðferðaraðilum að sjá hvernig heilsan þín þróast yfir tíma.
Aðstandendur geta einnig tekið þátt þegar þess er óskað, til dæmis með aðstoð við mælingar eða þátttöku í myndsímtali við þína meðferðaraðila

Með Unu getur þú
Fylgst með mælingum og þróun heilsunnar á einum stað
Fengið áminningar um mælingar, spurningalista og verkefni
Fengið fræðslu og leiðbeiningar sem tengjast þinni þjónustu
Svarað spurningalistum og skráð upplýsingar um þína líðan
Átt örugg samskipti við þinn meðferðaraðila með skilaboðum og myndsamtölum
Sinnt þinni heilsu og meðferð heima

Hvernig virkar þetta?
1. Þín þjónusta sett upp í Unu
Heilbrigðisstarfsmaður kynnir þig fyrir Unu og setur upp þjónustuna út frá þínum þörfum. Þú færð SMS eða tölvupóst með leiðbeiningum um að sækja Unu appið og skráir þig inn með rafrænum skilríkjum.
2. Una leiðir þig áfram
Þegar þú opnar appið sérðu strax þau verkefni sem meðferðaraðili þinn hefur sett upp fyrir þig. Það geta verið mælingar, spurningalistar, fræðsluefni eða myndbönd. Una minnir þig á þegar komið er að verkefni svo þú þurfir ekki að muna eftir öllu sjálf/ur.
3. Fylgstu með heilsunni þinni
Þú getur skráð lífsmörk eins og blóðþrýsting, blóðsykur, súrefnismettun eða þyngd. Ef mælitækið þitt er tengt Unu berast mælingarnar sjálfkrafa inn í appið. Annars getur þú einfaldlega skráð þær handvirkt. Una heldur utan um niðurstöðurnar og hjálpar þér að fylgjast með þróuninni og skilja betur eigin heilsu.
4. Una heldur utan um þig
Upplýsingarnar sem þú skráir berast inn í Unu þar sem meðferðaraðili getur fylgst með stöðunni og þróuninni. Þannig er hægt að fylgja þér eftir án þess að þú þurfir alltaf að mæta á heilbrigðisstofnun. Einnig er hægt að bregðast fyrr við breytinum þar sem Una heldur utan um allar niðurstöður og þróun.
5. Örugg samskipti þegar þú þarft á þeim að halda
Í Unu getur þú átt örugg samskipti við meðferðaraðilann þinn, sent skilaboð og myndir og tekið þátt í myndsamtali. Einnig er hægt að bjóða aðstandanda að taka þátt í myndsamtali þegar þess er óskað.

Dæmi um Unu í notkun
Jón er með sykursýki 2 og fær reglulega eftirfylgd hjá heilsugæslunni
Hjúkrunarfræðingurinn hans kynnir honum fyrir Unu og Jón fær skilaboð með leiðbeiningum um að sækja appið. Hann skráir sig inn með rafrænum skilríkjum og þegar hann opnar Unu sér hann strax þau verkefni sem hafa verið sett upp fyrir hann.
Jón mælir meðal annars blóðsykur og blóðþrýsting heima. Þegar hann notar mælitæki sem tengjast Unu berast niðurstöðurnar sjálfkrafa inn í appið. Hann getur líka skráð mælingar handvirkt ef hann vill það frekar.
Í Unu fær Jón einnig fræðsluefni og spurningalista sem tengjast hans meðferð. Appið minnir hann á þegar komið er að mælingum eða verkefnum og hann getur fylgst með niðurstöðum sínum og þróun þeirra á einum stað.
Heilbrigðisstarfsfólkið sem sinnir Jóni sér þær upplýsingar sem hann skráir og getur fylgst með stöðu hans samkvæmt því verklagi sem gildir um þjónustuna. Ef Jón hefur spurningu getur hann sent skilaboð í Unu appinu og þegar þörf er á getur hann átt myndsamtal við sinn meðferðaraðila
Þannig getur Jón tekið virkari þátt í eigin meðferð og hluti eftirfylgdarinnar farið fram heima.
Lára er að fara í aðgerð á sjúkrahúsi
Lára er á leið í fyrirfram ákveðna aðgerð og fær aðgang að Unu áður en hún mætir á sjúkrahúsið. Þar fær hún upplýsingar og verkefni sem tengjast undirbúningi fyrir aðgerðina.
Fyrir aðgerð svarar Lára spurningalistum um heilsufar sitt og tekur þátt í undirbúningssamtali í myndsímtali í gegnum Unu. Þannig getur hluti undirbúningsins farið fram heima hjá henni.
Í Unu appinu fær hún fræðslu og leiðbeiningar á réttum tíma, til dæmis um undirbúning fyrir aðgerð, föstu, lyf eða hvað hún þarf að hafa í huga fyrir komuna. Una minnir hana á þegar nýjar upplýsingar eða verkefni bíða hennar.
Eftir aðgerðina heldur Una áfram að styðja við bata Láru.
Anna fær sálfræðimeðferð
Anna er í reglulegri sálfræðimeðferð vegna kvíða og depurðar. Milli viðtala notar hún Unu til að svara stuttum spurningalistum um líðan, svefn og einkenni.
Í appinu fær hún fræðsluefni og verkefni sem tengjast meðferðinni og Una minnir hana á þegar komið er að næsta verkefni. Sálfræðingurinn getur fylgst með breytingum á svörum hennar yfir tíma og nýtt upplýsingarnar í næsta viðtali.
Sum samtöl fara fram í öruggu myndsamtali í Unu appinu og Anna getur einnig sent skilaboð ef það er hluti af þeirri þjónustu sem hún er skráð fyrir.
Þannig verður eftirfylgdin samfelldari og meðferðin nær út fyrir sjálfan viðtalstímann.
Eva vill geta búið lengur heima
Eva er 82 ára og fær heimahjúkrun. Hún vill halda sjálfstæði sínu og búa áfram á eigin heimili eins lengi og mögulegt er.
Með Unu getur Eva, með aðstoð aðstandanda eða starfsfólks ef þörf er á skráð þær mælingar og upplýsingar sem heimahjúkrun vill fylgjast með. Hún getur fengið áminningar um verkefni og mælingar og svarað einföldum spurningum um líðan sína.
Heimahjúkrunin fær þannig upplýsingar sem geta stutt við skipulag og eftirfylgd þjónustunnar. Þegar það á við geta samskipti eða myndsamtöl farið fram í Unu án þess að Eva þurfi að fara að heiman.
Aðstandandi getur einnig tekið þátt í myndsamtali þegar Eva óskar þess.