María er læknir og Arnar hjúkrunarfræðingur í heimaspítalateymi sem sinnir einstaklingum sem fá hluta heilbrigðisþjónustunnar heima.
Með Unu geta þau fylgst sameiginlega með mælingum, einkennum og svörum við spurningalistum, séð stöðu og þróun einstaklingsins og skipulagt áframhaldandi eftirfylgd. Þau geta einnig sent fræðslu, verkefni og leiðbeiningar og átt örugg samskipti við einstaklinginn með skilaboðum og myndsamtölum.
Þegar þörf er á samráði geta María og Arnar boðað fleiri inn í myndsamtal. Aðstandendur eða aðrir fagaðilar, til dæmis frá félagsþjónustu, geta fengið öruggan hlekk og tekið þátt í samtalinu án þess að þurfa að vera á sama stað.

