Guðrún sinnir einstaklingum með langvinna sjúkdóma sem þurfa reglulega eftirfylgd. Með Unu fær hún yfirsýn yfir mælingar, spurningalista og stöðu skjólstæðinga á einum stað.

Hún getur sett upp mismunandi eftirfylgd eftir þörfum hvers einstaklings, sent fræðslu og verkefni og átt samskipti í gegnum skilaboð eða myndsamtöl.

Una hjálpar Guðrúnu að halda yfirsýn og forgangsraða tíma sínum þar sem þörfin er mest.