Betri yfirsýn og markvissari eftirfylgni

Með Unu fær heilbrigðisstarfsfólk mælingar, spurningalista, verkefni og samskipti við skjólstæðinga á einum stað.

Una styður við reglulega eftirfylgd óháð staðsetningu og auðveldar starfsfólki að sjá stöðu og þróun þeirra sem eru í þjónustu. Þannig verður auðveldara að forgangsraða verkefnum og nýta tímann sem best.

Una fyrir heilbrigðisstarfsfólk

Með Unu getur þú

  • Fengið yfirsýn yfir skjólstæðinga og stöðu þeirra á einum stað

  • Forgangsraðað verkefnum út frá þörfum og upplýsingum úr mælingum og verkefnum skjólstæðinga

  • Fylgst með mælingum og þróun yfir tíma
  • Skipulagt verkefni, spurningalista og fræðslu fyrir skjólstæðinga
  • Átt örugg samskipti með skilaboðum og myndsamtölum

  • Haldið utan um bókanir og eftirfylgd á einum stað

  • Unnið saman þvert á fagstéttir, með viðeigandi aðgangsstýringum að upplýsingum

Heimaspítali með Unu

Heilbrigðisþjónusta þar sem einstaklingurinn er.

Heimaspítali gerir kleift að veita ákveðna sjúkrahúsþjónustu og eftirfylgd heima þegar það er klínískt viðeigandi.

Með Unu getur heilbrigðistarfsfólk fylgst með mælingum og líðan, lagt fyrir spurningalista og verkefni og átt örugg samskipti við skjólstæðinginn með skilaboðum og myndsamtölum. Upplýsingar um stöðu, mælingar og eftirfylgd eru aðgengilegar teyminu á einum stað.

Tengd mælitæki geta jafnframt sent mælingar inn í lausnina og einstaklingurinn fær fræðslu, leiðbeiningar og áminningar sem tengjast hans meðferð.

Þannig getur hluti þjónustunnar færst heim á meðan tengingin við heilbrigðisþjónustuna helst áfram sterk.

Reynsla í stórum kerfum

Tæknin sem Una byggir á hefur verið valin sem hluti af Hospital@Home-innviðum Region Stockholm, þar sem stefnt er að þjónusta allt að 15.000 einstaklinga heima árlega

Hvernig getur Una nýst í þinni þjónustu